Song Lyric Categories
|
|
From the 1995 cast album. This Icelandic language production of The Rocky Horror Show took place at Flugfélagið Loftur Theatre in Reykjavík, Iceland. All lyrics as printed in the CD liner notes. Unsurprisingly, the translations are pretty similar to the 1991 Icelandic Cast that performed a few years earlier in Reykjavík... with a couple of exceptions. First off, Hot Patootie was completely rewritten between productions - even the song titles are different ('Laugardagskvöld' versus 'Hoppum út um allan sal'). 'Laugardagskvöld' from the 1991 production is more traditional, with Eddie playing his "saxófónninn" and really loving that "rokk og ról". 'Hoppum út um allan sal' is a much darker vision of an Eddie who prefers death metal to Buddy Holly, instead singing "Ó, ég dái death metal". The other difference is in 'Tíðhnit' (The Time Warp), where the two productions have entirely different lyrics for Riff Raff's part at the beginning up until the first refrain of "Tökum eitt tíðhnitið enn". |
Þegar jörðin stóð kyrr
var Michael Rennie sem fyrr
stjarnan sem sagði okkur til
og Flash Gordon stökk um
í silfurnærbuxum
Claude Rains gegnum veggi og þil.
En eitthvað gekk ei
hjá King Kong og Fay Wray
það kom hnykkur á filmunnar spil
okkar mannanna börnum
barst frá fjarlægum stjörnum
boð sem gera skal skil.
Viðlag
Geimvísinda -
úhh, úhh, úhh
- myndaminni
doktor X hjá -
úhh, úhh, úhh
- ókind sinni.
við Brad og Janet hafa -
úhh, úhh, úhh
- geimmenn kynni
Anne Francis er á -
úhh, úhh, úhh
- forboðnu plánetunni
á geimvísinda-miðnæturmynd
í Héðinsbíó.
Leo Carrol fékk tak
um leið og hann rak
risakónguló langt upp í fjöll
Og víst var það flott
þegar hún Janette Scott
barði eldspúandi þríöfða tröll
Dana Andrews þá byrst
beitti rúnanna list
og að rista þær nornin var snjöll
Í ragnarökum sagði
George Pal við sína lafði
Nú fyrst hefjast spennandi spjöll
Sem eru...
Viðlagið endurtekið
Fljótið var mórautt og mislitt
Janet
en mér þykir allt saman ónýtt
Janet
hlustaðu róleg á mál mitt
Janet
ég meina þetta eitt sem er erfitt,
Janet, ég elska þig.
Leiðin var steinótt og stórgrýtt
Janet
en stormandi bálið er brennheitt
Janet
magnaðri er viljinn en vit mitt
Janet
ég vil þetta eitt sem er erfitt,
Janet, ég elska þig
Fingurgullið færir góður gæji
Gæfan fylgir oss á þennan veg
Vel - illa - eða í meðallagi
J-a-n-e-t, þú ert yndileg.
Betty fékk barasta tómt plat
Ó, Brad
býsn er ég feginn að ég gat
Ó, Brad
haft þig hjá mömmu í kvöldmat
Ó, Brad
ég man það eitt að ég sat,
Brad, óð í þig.
Ó, Brad -
Svo erfitt -
ég sat -
ó, Janet -
óð í þig -
eins og ég í þig-
nú er að fara á næsta stig.
Förum til fræðarans sem ekki fyrtist
Janet
er fann ég að ástin mér birtist.
Janet
Í tíma hjá honum ég trylltist
Janet
með tjáningu ástin mín styrkist,
Janet, ég elska þig.
Erfitt, Janet
Ó, Brad, ó, Brad
Janet, Janet
ég elska þig.
Er magnast myrkrið
svo mjúkt og svart
logar bjart - leiðarstjarnan skær
lifnar og dafnar draumur þinn kær
Ljómar ljós
logabjart í Frankenstein-höll
ljómar ljós
lifna í arni eldsins tröll
ljómar ljós - skært ljós
ljós sem vísar
lífsins leið um nótt.
Þar flaksast fáni
fjarri við hún
hátt á brún - vís er von og trú
að vænkist okkar hagur hér og nú
Ljómar ljós
logabjart í Frankenstein-höll
ljómar ljós
lifna í arni eldsins tröll
ljómar ljós - skært ljós
ljós sem vísar
lífsins leið um nótt.
Myrkur á braut
hverfi í móðu næturdrauma
Flæði valmúans blóð láti ljóss
og sólar strauma vekja mér móð
vekja mér móð
Ljómar ljós
logabjart í Frankenstein-höll
ljómar ljós
lifna í arni eldsins tröll
ljómar ljós - skært ljós
ljós sem vísar
lífsins leið um nótt
Tíminn flýtur
allar reglur brýtur
bilun, getur verið dýr.
Hlustið á mig það tekur brátt enda
ég vakta tímans brýr
Já ég man það, er ég tímann beygði
drakk eitt stundarglas
af tíðablóði, einnar stundar gróði
Tökum eitt tíðhnitið enn
tökum eitt tíðhnitið enn
Eitt vakurt vinstra hopp
og vel til hægri snú
Hafið hendur á mjöðm
og hnén saman nú
En gerið hnykkinn á grind
þá geggjast bæði karlar, konur og menn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Ég svíf í draumi - í hugarflugsflaumi
flýg ég í laumi - dimmt og kalt
Í ómælisvíddum - ligg á veraldargluggum
volg undir uggum - sé ég allt
Með því að taka einn hugarkipp
ferðu yfir á tímaflipp
fílar allar aldir í senn
verður skakkur af skynjun
eins og liggirðu í lyfjum
Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Ég var á gangi hér á götu
er í gúmmítúttum þaut
og skítseyðisgæi
gaf mér skaðræðisflaut
Mér brá við blókastíl
bjóst við jeppagæjaskríl
en sá seiðandi augu
á sendiferðabil
Hann leit á mig - ég lifna enn
logandi var tíminn - og enn ég brenn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Viðlag endurtekið
Tökum eitt tíðhnitið enn
Tökum eitt tíðhnitið enn
Viðlag endurtekið
Sæl og blessuð,
ég sé þið rákust
á tryggan ráðsmann minn.
Hann er styggur þessi gikkur
því í staðinn fyrir ykkur
vildi hann hitta stuðmanninn
Hlaupið ekki í hnút
þótt ég líti svona út
bókin er oft betri en spjöldin
mín karlmennska dvín
meðan dagsljósið skín
en ég er þrælgóður elskhugi á kvöldin
Ég er trylltur transi
frá kynfráu
Transylvaníu
Leyf mér að bjóða ykkur inn
og kannski tónlist um sinn
þið virðist bæði geðþekk og glaðlynd
Ef þið viljið það sjónrænt
en ekki alltof siðrænt
gætum við litið á gamla Steve Reeves-
mynd
Gott að hitta á þig hér
Má ég hringja hjá þér?
Í skyndi ef þér væri sama
Það verður örstutt
svo förum við burt
við viljum síst verða til ama
Dekkið þitt sprakk
og þú átt engan tjakk
en greyin mín, ekki þennan flýti
Gott miðnæturblót
er meinanna bót
ég sendi ykkur vélsmið úr víti
Ég er töff og taumlaus transi
frá kynfráu
Transylvaníu
Þið gætuð gist hér í nótt
jafnvel gert eitthvað ljótt
og séð þráhyggjuverk mitt í þróun
ég er að búa til karlmann
bæði stóran og stæltan
sem kynni að veita mér fróun
Ég er töff og taumlaus transi
frá kynfráu
Transylvaníu
Ég er töff og taumlaus transi
frá kynfráu
Transylvaníu
Gáum hvað tilraunastofan..
..geymir hér fyrir ofan.
Þennan tilhlökkunartitring ég þekki
Nema rigning og rok
séu svona þungbært ok
þá afnem ég okið en einkennin ekki.
Fisléttur væskill fljótt kernst í þrot
er felldur í svaðið og sleginn í rot
en lætur lifna sinn þrótt
í líkamsrækt fljótt
svo móður honum svellur
svitaflóðið fram vellur
hann fer að glitra og gljá
eftir gufu jafnvel nudda má
Þá fer hann stæltur á stjá
Hann verður herkill
enginn væskill
Hann étur heilsufæði og fræfla
bætir bætiefnum við
til að byggja upp herðar
sterk læri og kvið
Hann yrði hissa þessi væskill
ef hann vissi hvað ég kann
á viku rétt sléttri
get ég búið til mann
Hann þrykkir og þvingar
sveigir og beygir sinn bol
að búa þaninn við spennu
hlýtur að útheimta þol
allt er þetta rugl
eftir að ráðið ég fann
á rétt sléttri viku
get ég búið til mann
Hví eru liðin þau laugardagskvöld
er leðurjakkagengið svala tók öll völd?
Af himninum kom hrollvekjandi geislafjöld.
Ég hélt um stund ég væri kannski orðinn að guði.
Í bíltúra með kvenfólki með brókarsótt
(af brókarsóttarkvenfólki er alltaf gnótt)
fór ég því þær leyfðu mér að gera ljótt.
Mér leið ansi vel því allir voru á bömmer.
Hoppum út um allan sal.
Ó, ég dái death metal.
Ilmvatnslyktin fyllti öll mín vit
svo uppskar ég að lokum eftir mikið strit
konubragð og verðskuldaðan varalit
og vissi að við tvö gætum dundað eitthvað saman.
Þá var kveikt á mónítorum yfirleitt,
en ef það var um nætur sem ég komst í feitt
hélt ég bara um dömuna og heyrði ekki neitt,
heltekinn af því það var svo ofboðslega gaman.
Hoppum út um allan sal.
Ó, ég dái death metal.
Sjái ég kraftajötna mikla
kreppa harða vöðva og hnykla
finn ég þeirra þrek
finn líka að ég tek
Charles Atlas langt fram
því leikandi á viku
get ég búið til mann
Ég girnist enga glennu
heldur glímubrögð og spennu
Ég girnist glímumann
Á rétt sléttri viku
get ég búið til mann
Ekkert bölvað gjamm
á rétt sléttri viku
get ég búið til mann
Mér fannst ég fallin í sekt
freklega blekkt
ég hafði varla karlmanns kennt
að stunda lostalæti
ljóslega af sér gæti
leitt ljótar bósabögur
og blaut sæti
Nú vil ég vita og sjá
hvað veita má
enn meiri bruna í mitt blóð
Ég hefi smakkað smá ögn
sem smyglað var í kynþögn
til að vekja villta þrá
vantar mig leiðsögn
Komdu komdu komdu við mig
ég er komin í svaðið
Vertu spilltur vertu trylltur
villta næturdýr
Verði vöðvi of stór
við kitl og klór
með nautn ég nudda harðnað hold
Og eftir sund og sólbað
sæki ég beint á bólstað
þú þráir ástaryl
ég þrái að fá það
Viðlag endurtekið
Þessi yngissveinn
fæddist rotta
húskross ei neinn
var þyngri móðurmynd
hún reyndi í raun
raun og mæðu fékk í móðurlaun
Hann hvarf daginn sem hún dó
Krípið að heiman fló
kærði sig um ekkert
nema rock'n'roll
klám og mótorhjól
Á nös og nál
hékk þetta siðfatlaða göturæsafól
töffari og ólíkindatól
Skarn verður barn
sem vill ekki eiga bangsa
brátt farnast því á verri veg
hann varð ógn við allt líf
átti spretthníf
hörkugæji
gráti nærri
það er ég
Það vildi enginn sjá hann
en mér leist þrælvel á hann
ég sagði: í öllu þruglinu
skaltu hafa reglu á ruglinu
þá rammlæsti hann allri sinni sál
Eddie mun hafa lent
í ljótum málum
í laumi var sent
blóðugt sendibréf
Allt klúðrað og klesst
komdu í hvelli áður en ég ferst
hér spinnur lostanornin lygavef
(Viðlag endurtekið tvisvar)
Ég var aðdáandi Frankies fyrst
og fríkaði út af hjartans lyst
það var búið er yfir hann brann
og fór að búa til vöðvamann
en ég uni enn í okkar hóp
því ég elska ákveðið dóp
rós skyggir heim er minn
skjöldur gegn kvölum og raun
Fyrir sjö tímum fór ég á stjá
svona föngulegur á að sjá
ég lifði undir lás og slá
lostahvatirnar knýja á
öll mín ævi er á því byggð
að æsa fullnægingarblossafrygð
rós skyggir heim er minn
skjöldur gegn kvölum og raun
Ekki skamma
mig elsku mamma
raun mikla og ramma
ratað hef ég í
ég skil ekkert í því
ég er orðinn sexí
ég finn svo mikið fyrir því
nú flæðir það á ný
Ég geng upprétt
oki er aflétt
mín pólitík varð pottþétt
er punktinn loks ég sá
nú hef ég allt á hreinu
og holdsins lyst á beinu
Frank á sína einu
ómenguðu þrá
Hvað hefur frést af henni Fay Wray
hinni fáguðu satínglæstu rún
klæðið féll þétt að mær
ég var klökkur, gráti nær
því ég þráði að klæðast eins og hún
Fel þig á vald hinnar fullkomnu nautnar
fljótandi um lostaheit munúðarhöf
martraðir girndanna leita ei lausnar
ljúfsárir dagdraumar streyma án enda
lifðu og njóttu
Dreymdu ekki - vertu
dreymdu ekki - vertu
dreymdu ekki - vertu
Brjótumst út - skyldan oss skikkar
skynlaus siðblinda - ykkar er blind
ég vil berjast - og syndinni verjast
viljaþrek brestur ef hugurinn klikkar
og ég fer að lifa fyrir
neðan þind
Ekki skamma
mig elsku mamma
Guð blessi Lily St. Cyr.
Ég er ótemja æði slyng
eins og býflugan banvæn sting
ég æsi mig og þig og alla í kring
í ofsatrufluðum takti syng
Alltaf partífjörið upp ég ríf
í æsilegum ryþma allt mitt líf
Rós skyggir heim er minn
skjöldur gegn kvölum og raun
Frank 'n' Furter
að fullu gjört er
út um þína framtíð
og yfirkeyrðan stíl
Ég tekið hef við völdum
frá vitfirringu höldum
við heim til Transylvaníu
tak flutningsgeislann til
Heiman frá mér leiðin lá
lagði
allt mitt undir eina þrá
hafði
engin orð að segja þá
þagði
nú kem ég aftur ef ég má
Þvi ég sá bláan himinn
gegnum tár á brá
þar kom að því
ég ætla heim
ég ætla heim
Ég átti allra kosta völ
náði
hvergi að eiga langa dvöl
þráði
að finna sælu væri hún föl
þáði
þátt í sorgum þátt í kvöl
Ég sá bláan himinn
gegnum tár á brá
þar kom að því
ég ætla heim
Ég gerði margt
Guð veit ég reyndi
í sannleiksleit
ýmsu ég leyndi
ég veit það eitt
mitt líf er sundur
slitið
Ofurhetjur
efna til blóta
og eta hold
sem enn vill njóta
ég veit það eitt
enn getur dýrið
bitið
Ahh.. osfrv.
Og á jörðinni
skríða enn
undarleg kvikindi
kölluð menn,
villuráfandi
í tíma og rúmi
án tilgangs
Copyright © 1997 - 2024 Shawn McHorse. Send comments to shawn@rockymusic.org.